Desperate housewives klúbburinn
Klukkan
17.04.2008 21:09:35 / The Rock

Góðir grannar

Vorum að ganga frá sölunni á íbúðinni okkar og orðin ekkert smá spennt:haha: bæði að fara að flytja (og það ekki lengra en í næsta hús þannig að ég þarf ekkert að pakka eitthvað geðveikislega skipulega bara bera dótið á milli) og líka yfir því að fá svona frááábæra nágranna, Fanney og Ari ætla að eiga heiðurinn af því að gleðja mig svona mikið, híhí.
TIL HAMINGJU MEÐ ÍBÚÐINA VINIR!

Kv. Jennslan

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 20:52:25 / The Rock

Leitin mikla!!!!

HALLÓ 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 12:55:11 / The Rock

Alveg satt?

1: Miðnafn þitt?

2: Aldur?

3: Single or taken?

4: Uppáhalds bíomynd?

5: Uppáhalds lag?

6: Uppáhalds hljómsveit?

7: Uppáhalds búð?

8: Tattoo eða göt?

9: Þekkjumst við persónulega?

10: Hver er tilgangurinn með lífinu?

11: Myndirðu bakka mig upp í slagsmálum?

12: Myndiru þeigja yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13: Besta minningin þín um okkur?
 
14: Myndir þú gefa mér nýra?

15: Segðu eitthvað skrítið um þig?

16: Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

17: Getum við hittst og bakað köku saman?

18: Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

19: Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20: Finnst þér ég góð manneskja?

21: Myndiru keyra með mér hringinn i kringum landið?

22: Finnst þér ég aðlaðandi?

23: Hverju myndir þú vilja breyta í fari mínu?

24: Í hverju sefurðu?

25: Kæmirðu í heimsók af tilefnislausu,bara til að chilla?

26: Ef að ég ætti einn dag eftir ólifaðan,hvað myndum við gera saman?

27: Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo að ég geti fyllt þetta út?


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 21:19:23 / The Rock

Ekkert djamm eða hvað???

Það mætti halda að við værum búnar að vera svona ótrúlega góðar og þægar allt árið, en málið er bara að ég hef verið of þunn til að geta skrifað eitthvað af viti8)

Það var að sjálfsögðu haldið upp á 15 ára fermingarafmæli með pompi og prakt, og að sjáfsögðu gerðum við alltaf18 dömurnar þetta með trompi;) Það var farin spes ferð í höfuðborgina til að versla á sig nýtt dress (ekki gátum við látið sjá okkur í einhverjum gömlum lörfum) Siggu var flogið heim frá Danmörku( ekki mátti vanta hana), við reyndum að kyrrsetja Dóru en það gekk ekki og þurfti því daman að vera á sjónum:cry:. Við fengum til liðs við okkur förðunarfræðinginn  hana Hildi Ingólfs. og kom hún heim til mín í forpartýið og sminkaði okkur allar, ég fékk að greiða nokkrum hausum og Sigga fékk að keyra okkur í partýið:haha: Fermingarafmælið var rosalega vel heppnað og það var ótrúlega gaman hvað margir gátu mætt, alveg magnað að hitta allt liðið aftur. Ég hlakka hrikalega til að endurtaka þetta eftir önnur fimm ár.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 22:00:44 / The Rock

Virka Bloggið...

Hey ég setti inn nýja skoðanakönnun..............................................

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 18:38:21 / The Rock

Æðipæði


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 22:30:01 / The Rock

Upplifting

Rétt áður en ég ætlaði að fara að slökkva á tölvunni ákvað ég að síðan þyrfti smá andlitslyftingu og hvað annað kom til greina en singstar bakrunnur:D

Vonandi verðið þið elsku alltaf18 stelpur virkari í gulli;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 22:14:50 / The Rock

Okkar eigin myndasíða!

Úú ég þykist vera svo mikill snilli, en það er búið að taka mig mörg mörg kvöld að útbúa eina mynda síðu sem nú er komin í gagnið. Ég ætla að sjálfsögðu að setja inn myndir frá hittingunum okkar en svo var ég líka að hugsa um að hafa stórt albúm BARA af mér8)

Nei nei ég skal ekki gera það en það væri samt gaman að setja inn bara allskonar myndir af okkur gamlar eða nýjar, eitthvað sem ykkur dettur í hug, bjallið bara og fáið aðgang að síðunni.

Kv MegaBabe´ið


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 21:48:42 / The Rock

Fundur nr.3

Já hóað var í allar pæjurnar á þriðja hittinginn rétt fyrir jólin, svona á meðan Sigga var á landinu og Dóra í landi:lol:

Sá hittingur var haldin á DUUS og mættum við þar saman Jenný, Fanney,Rakel,Sigga,Dóra og Elín. Allar fengum við okkur dýrindis Duus-rétti (nema Dóra hún fór á villa-pulsu áður og var ekki svöng) En svo var að sjálfsögðu drukkið og spjallað fram eftir öllu (starfsfólki duus til mikillar gleði:S) Reyndar létu Elín, Rakel og Dóra sig hverfa nokkuð snemma, en Jenný, Fanney og Sigga sátu sem fastast áður en þær rúlluð út af kaffihúsinu og enduðu niðri í bæ í rífandi stemmingu:haha:.

Ég ætti kanski að láta það fylgja að við ákváðum að halda þennan hitting á fimtudagskveldi svona til þess að koma í veg fyrir of mikla drykkju:$.

....og þær drukku öl og þær átu kjöt og þær skemmtu sér mjög vel....

Kv. Jenný


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 11:29:00 / Aðalpæjan

Annar fundur

Já svo hittumst við aftur vinkonurnar og þá í það skiptið heima hjá Jenný :) Við elduðum humarsúpu og drukkum hvítvín með.:haha: Á þennan fund komu, Jenný, Sigga, Dóra, Rakel, Elín og ég of course...hehe læt mig sko ekki vanta, thats for sure, enda má ég ekki missa af neinu:lol:

Við vorum allar jafn hressar og síðast, enda hressur hópur á ferð. Eftir matinn var haldið áfram að sötra hvítvín.....eða #HÓST# þampa 8)

Við fórum í einhvern pæjuleik hehe, þar sem Jenný sá um að greiða fólkinu hehe og ég fór úr að ofan og lánaði flíkur af mér (var sko með auka með ) Svo var horft í spegilinn nokkrum sinnum með pæjulæti hehe. 8)

Auðvitað var farið í SINGSTAR, það má ekki vanta í okkar partý, og sungið var vel og lengi.....ok kanksi ekkert rosalega vel ....em lengi jú;) Jenný tók það með trompi og fór að dansa á borðstofuborðinu :lol:bara fyndin.

Ekki var mikið um trúnó minnir mig í þessu partýi, bara meira um pæjulæti. ;)

Þetta kvöld fórum við svo niður á H-punkt.....minnir mig,,,,,orðið pínu síðan :S ekki nema að ég sé að ruglast við síðast. En allavega....þar var dansað og dillað rössum :)

Ef ég er ekki að segja rétt frá stelpur eða eitthvað.....þá bara gerið ykkar útgáfu af kvöldinu hehe.....miða við drykkjuna þá er án efa margar útgáfur til, hver og ein upllifað þetta á sinn hátt hehe;)

Jæja ætla þykjast vinna:$

Love you girls

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 22:04:52 / Aðalpæjan

Fyrsti fundur

Já fyrsti fundur okkar var alveg hreynt frábær8) að hittast allar svona saman eftir öll þessi ár er alveg hreynt æðislegt:D Við heldum fyrsta hittingin heima hjá mér Aðalpæjunni :P í íbúðinni fallegu(eða þannig) sem við hjónin vorum að leigja þá. Mikið svakalega var gaman marr...hehehehehe, við hlógum, drukkum og grenjuðum til skiptis hehe. Enda frá nógu að segja eftir allan þennan tíma. Þetta er líklegasta stæðsta trúnó sem ég ég tekið þátt í, hef aldrei lent í öðru eins haha.

Það sem mér fannst best við þennan hitting var það að upplifa væntumþyggjuna sem við berum til hverrar annara:) Við smullum allar strax saman, sami húmorinn, sömu gelgjurnar ha ha.

Þegar við vorum yngri þá vorum við alltaf að dansa og syngja og vera pæjur, og var sko sannarlega eingin breyting á því þetta kvöldið hehe;) Við tókum karókí með stæl á Hápunktinum haha.

Eins og desperate housewives þá erum við allar mjög ólíkar, en skemmtilega líkar að því leitinu að allar þráum við að vera fullkomnar að einhverju leiti hehe. :$Planið er að hver og ein fái það verkefni að fá að lýsa einhverri einni í hópnum......hreinskilningslega of course....:lol:

ég mæli með að þið takið prófið hér á síðunni.....þrælskemmtilegt. :haha:

Verið dugleg að kvitta í gestó

Kv Aðalpæjan


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 21:07:39 / alltaf18

Fyrsti fundur

Þetta byrjaði allt saman á ótrúlega tilviljanakendum hittingum eftir langan aðskilnaðar tíma, til dæmis hitti ég Fanney óvænt á fimleikaæfingu hjá dætrum okkar (sennilega vorum við búnar að hittast oft áður án þess að fatta það) en við höfðum ekki sést þá í ein 16 ár;) Sigga og Fanney hittust í Húsasmiðjunni og svona var þetta með okkur allar, reyndar voru einhverjar okkar búnar að vera í sambandi í gegnum árin en þarna byrjaði þetta semsagt einhventíman um vorið 2006.

Fyrsti hittingurinn var heima hjá Fanney á Reykjanesveginum, það er alveg ótrúlega skrítið hvað mann getur kviðið mikið fyrir að hitta fólk aftur eftir svona langan tíma, allir voru ýkt feimnir og kjánalegir svona til að byrja með en svo urðum við bara fullar og kjánalegar:haha:

Þær sem mættu í fyrsta hittinginn voru að sjálfsögðu ég Jenný, Fanney, Rakel, Elín, Sigga, Dóra og Nilla.

Það sem fór fram á fundinum var aðalega rosalega mikill kjaftagangur, ýmindið ykkur bara 7 stelpur að reyna að bæta upp ca.15 ár af kjaftasögum:$ Svo var farið á skemmtistað og sundið í sing star og bara rosa fjör.

Og að sjálfsögðu var strax ákveðið að hittast aftur.:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Könnun
Hver ert þú?